Kjölur, 28. – 30. júlí 2020
Við Guðrún Hreinsdóttir vorum búin að tala um að hjóla Kjöl við tækifæri. Þ.e.a.s. ef góð veðurspá væri framundan og við í fríi. Mig minnir að hugmyndin hafi komið eftir að ég keyrði Kjöl á leiðinni heim eftir hálendisferðina 2019. Svo laugardaginn 25. júlí, að mig minnir, hringdi hún í mig og sagði að það væri góð spá framundan og hvort ég væri ekki til í að fara. Ég hélt það nú. Ég hafði svo samband við Kolbrúnu Sigmundsdóttir og Jón Torfason til að athuga stöðuna á þeim.