Mér finnst gaman að ferðast. Mér finnst gaman að sjá hvernig sjónarhornin breytast eftir því hvernig ég færist til. Hvað birtist á bak við næsta fjall, hvert rennur þessi lækur, hvernig tengjast þessir ásar og hálsar? Gluggasæti í lest (ef það er ekki of mikið af trjám) eða í flugvél (ef það er ekki of mikið af einsleitum skýjum) eru mínir staðir. Ég skil ekki hina týpuna; fólkið sem dregur fyrir gluggann eða skoðar eitthvað á blaðsíðum eða skjám, meðan stórbrotið eða spennandi útsýni líður hjá.