Þetta gerðist einsog sprenging. Allt í einu er Ísafjörður einn heitasti staður landsins fyrir fólk sem rennir sér niður fjöll á reiðhjólum. Hvernig stendur á því? Það þarf aðallega tvennt til. Annars vegar er það rétta landslagið. Það er til staðar í fjalllendinu uppaf Skutulsfirði, þar sem höfuðstaður Vestfjarða er. Þar er allskonar halli á brekkunum og vegir og slóðar liggja uppá heiðar. Hins vegar þarf rétta fólkið til að koma auga á möguleikana í landslaginu og gera eitthvað í málunum. Þetta fólk er líka til.